desember 16, 2004
Próf búið, einn dagur eftir
Jæja, þá er prófið að baki. Gavin hélt upp á afmælið (33) sitt í kvöld á TGI Friday's. Ekki staður í sérstöku uppáhaldi hjá neinum en Birthday Boy fékk að ráða. Þjónarnir komu með köku og sungu og allt heila klabbið. Áður höfðum við spilað einn leik í keilu, þannig það stefndi í mjög amerískt kvöld.Tilraun til að breyta því var að fara á "eina pöbbinn í Kaíró", sem heitir Pub 28. Hann á að vera breskur og er aðallega sóttur af (breskur) expöttum á Zamalek.
Staðurinn var í vissum skilningi breskur, já. Ég vonaðist hinsvegar eftir að geta fengið mér almennilegan, dökkan bjór og bað um Guinness. "Því miður, Sakkara, Stella, Meister, Heineken?" svaraði þjónninn. Ojæja, maður kom ekki til Kaíró fyrir bjórinn. Hvað um það, staðurinn var pakkaður af fólki, mestallt expatar. Í þessum "breska pub" var Edith Piaf spiluð - hátt. Altso eftir að diskurinn með spænsku gítartónlistinni kláraðist greinilega. Welcome to Egypt! Where Edith Piaf is British!
Á morgun er síðasti dagurinn í skólanum í bili. Fæ út úr prófinu sem ég tók í dag. Gekk ekki eins vel og hefði viljað. Vikan sem ég missti út vegna veikinda var kostnaðarsöm. En ég veit núna hvar ég er veikastur fyrir. Málfræðin er ekki að snúast svo mikið fyrir mér, orðaforðinn er hinsvegar í molum hjá mér í þessum kúrsi. Ætla að læra hann um jólin!
Það hefur sannarlega fátt á daga mína drifið síðustu vikur. Ég er enn einn heima í íbúðinni, Eric kemur ekki frá Lúxor fyrr en á sunnudag. Kann því ágætlega, í hreinskilni sagt.
Þessi vika hefur að mestu farið í lestur og svo hef ég reynt að fara út á kvöldin. Síðasta vika var svipuð. Helgina á milli gerði ég sama og ekkert (nema læra og horfa á sjónvarpið) þar sem flestir vina minna hérna voru í tveggja daga ferð út í eyðimörkinni. En ég náði að tengjast internetinu hérna heima í gegnum laptopinn sem er stór kostur. Ekki seinna vænna að takast það svona síðustu vikuna!
Þarsíðustu viku lá ég í bælinu og gerði ekkert spennandi en helgina þar áður komu tveir vinir Gavins og Aishu hingað og með þeim og Gavin átti ég líklegast best heppnaða daginn minn hérna til þessa. Fórum til Sakkara og Giza að skoða pýramíta og svo á Egypska safnið. Ég á enn eftir að setja seinni filmuna frá Pýramítaferð nr. 2 og svo er filman frá þessum "bankers' holiday" mínum ókomin á netið (þegar ég kemst í háhraðatengingu). Þessir vinir G&A sem komu hingað í helgarheimsókn eru nefnilega báðir bankamenn, millistjórnendur í City. Stórskemmtilegir strákar. En sú saga kemur síðar. Vonandi að ég mér vinnist einhver tími til að skrifa hana.
Filmurnar sem komnar eru á netið eru hér: 2 - 3 - 4 - 5
Agust skrifaði 16.12.04 03:56 (GMT+2)
(Íslenska)
Comments
Hæ frændi. Gaman að lesa þessi skrif þín, ég hefði viljað gera það fyrr, en ég er ekki svo vel að mér í þessum blogg heimi. Stína mín leiðbeinti mér og svo er þetta ekkert mál. Gaman verður að sjá þig á Íslandi eftir nokkra daga, ég hlakka til!
Vala frænka skrifaði 20.12.04 00:49